Spurðu mig hvort ég sé kanína!
Ertu kanína?
Já ég er kanína. Spurðu mig hvort ég sé krókódíll!
Ertu krókódíll?
Nei, kjáninn þinn. Ég var að segja þér að ég væri kanína.


-Hefurðu heyrt um hafnfirsku músagildruna?
Í gær fann ég fjórar dauðar mýs við hliðina á einni. Þær höfðu dáið úr hlátri!


Dag einn bauð Bolvíkingur Hafnfirðingi í kaffi.
Þegar Hafnfirðingurinn kom hékk miði á hurðinni, þar sem á stóð:
-Nú gabbaði ég þig. Ég er ekki heima!
Hafnfirðingurinn skrifaði þá miða sem á stóð:
-Ha, ha! Nú gabbaði ég þig, því ég kom aldrei!


-Hvenig geturðu séð að Hafnfirðingur hefur verið að nota tölvuna þína?
-Það er tipp-ex á skjánum!


Hversu margar sneiðar er hægt að skera af heilu brauði?
Eina, því þá er það ekki lengur heilt.


Hvernig getur þú borðað egg án þess að brjóta skurnina?
Með því að láta einhvern annan brjóta hana.


Hvernig er hægt að láta egg falla einn meter án þess að það brotni?
Láta það falla tvo metra og það brotnar ekki á fyrsta metranum.