Jón bóndi í Útnára hafði aldrei verið giftur, en var í gær að fá til sín eina Thælenska úr póstlistanum “Einn með Öllu”. Hann veit ekki alveg hvernig hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í póstlistann, en fyrir slysni ruglast hann á símanúmerum og fær samband við tölvubúðina “Ein með Öllu”. '

Heyrum nú hvað þeim fór á milli.
Sölumaður (S)
Jón bóndi (J)
RING RING

S “Ein með öllu” góðan daginn,
J Já, góðan daginn. Ég fékk hjá ykkkur “Eina” núna um daginn og ég er í helvítis brasi með hana. Ég kann bara ekkert á hana. Ég held að hún sé tælensk…..
S Neiii…. Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega þá
hlýtur hún að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?
J Hún heitir Hí un Dæ, held ég. Hún er allavega með merki framan á sér sem á stendur. Hí un Dæ.
S Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með hana?
J Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað í allan dag en ekkert gengið.
S Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?
J Já, hún stendur hérna alveg “nettó ”fyrir framan mig og ég bara veit ekkert hvað ég á að gera næst.
S Mér finnst nú alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég nota þær. Annars þreytist maður svo fljótt í bakinu.
J Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!
S Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin heit.
J Ég er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg
víðast hvar…
S Hvernig týpa er þetta annars? 486?
J Tja- 6 og ekki 6…Það sem ég var með í huga var bara svona
venjulegt sex allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita hvað maður gerir svona seinna meir…
J Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina, og færa hana rólega þangað til að “bendillinn” er kominn þangað sem þú vilt.
J Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á
meðan við erum að kynnast?
S Nei nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina þannig að þú fáir það sem þú vilt.
J Jæja , það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af
hárum á músinni !
S Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga. Hvernig er annars minnið í henni?
J Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í gær
S Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?
J Harðan. Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er ég
búinn að fá eitthvað til að setja hann í! !
S Hvað er hann stór“”?
J Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi! ! ! !
S O.K. gott, þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann.
Segðu mér annað, hvernig drif er á henni? J Hvað meinar þú með drif??????
S Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drif…
J Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum
S Já, rifan er til þess að bæta í hana einu og öðru. Þú
stingur bara floppinum inn og svo er það bara “run” og “enter”.
J Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég geti
verið að hlaupa mikið en ENTER það get ég! ! !
S Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði
geymir allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún krassi á þig ! ! !
J Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað þá hugsun til enda.
S Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst.
J Það hlýtur að vera ósköp sárt! ! ! ! !
S En hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota hana?
J Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég er að kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað nytsamlegt.
S Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að gera að nýta möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður getur.
J Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?
S Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar.
J Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð? Hún Hí un Dæ???
S Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega þrælgóð.
Þú þarft náttúrulega að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur bara með hana niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu uppí.
J Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið…..
S Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu.
Margir skipta á svona tveggja ára fresti…
J Heyrðu, ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég tilbúinn til þess að hjóla í hana….
S Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég koma á staðinn og hjálpa þér.