Ítalskur maður gengur inn á uppáhalds veitingastaðinn sinn og
meðan hann situr við sitt borð tekur hann eftir því að gullfalleg
kona situr á næsta borði…alein.
Hann kallar á þjóninn og biður hann um að fara með dýrasta rauðvín
hússins til hennar, vitandi það að ef hún þyggur það sé nú
eftirleikurinn auðveldur.
Þjónninn fer með rauðvínið til konunnar og segir henni að þetta sé
frá herramanninum á næsta borði, hún lítur á hann og ákveður að
senda honum bréf.
Í bréfinu stóð: “ Ef ég á að þiggja þessa flösku verður þú að eiga
Mercedes í bílskúrnum, milljón á bankareikningi og 7 tommur í
nærbuxunum þínum!!”
Eftir að maðurinn las orðsendinguna ákvað hann að senda henni bréf
til baka, og í því stóð: " Bara svona til að þú vitir það þá vill
svo til að ég á Ferrari Testarosa, BMW 850iL og Mercedes 560SEL í
bílskúrnum, plús að ég á milljarða inn á bankareikningi, en jafnvel fyrir svona fallega konu eins og þig myndi ég aldrei láta
taka af 3 tommur, sendu bara flöskuna til baka!!