1# Ég er að flytja frá Akureyri til Reykjavíkur í eitt ár. Er hægt að
flytja gsm númerið með sér til Reykjavíkur eða eða þarf ég að fá mér nýttnúmer???

2# Nei, nei. Þetta er eitthvað bilað hjá ykkur. Ég er búinn að hafa
þetta símtæki í 40 ár, og hann fer nú varla að bila úr þessu!!!!!

3# Ég er að fara til USA á morgun, og ætla að taka GSM símann minn með.
Þarf ég að taka hleðslutækið með mér líka.

4# Þegar maður er staddur í útlöndum, og hringir heim, þarf maður að
setja 354 fyrir framan, en hvað þarf maður að setja fyrir framan þegar
maður er að senda tölvupóst erlendis frá???

5# Ég er með breiðvarpið, og horfi mest á spænsku stöðina. Hún er
svarthvít hjá mér, og ég er að horfa á matreiðsluþátt. Veistu nokkuð litinn á kökunni sem er á skjánum núna???

6# Hvað á þetta að þýða að loka símanum. Ég gerði allt upp hjá ykkur fyrir nokkrum mánuðum síðan.

7# Ég var að pæla í að gefa stráknum mínum LSD. Getið þið reddað því fyrir mig? (ADSL)

8# Ég stillti GSM símann minn á þýsku, en þegar ég sendi þýskri
vinkonu minni SMS, fær hún þau bara á íslensku!!!