Nýjar rannsóknir hafa leitt í ljós að bjór inniheldur kvenhormón og er því hættulegur fyrir karlmenn. Karlmenn sem drekka bjór taka upp hegðunarmynstur kvenna og ef drykkjunni er haldið áfram geta þeir átt á hættu að breytast í konur.
100 karlmenn voru látnir drekka bjór og eftir aðeins sex bjóra voru áhrifin orðin sýnileg á öllum mönnunum (100%).

Þeir:
- Þyngdust
- Fóru að blaðra tóma vitleysu
- Gerðust alltof tilfinninganæmir
- Gátu ekki keyrt
- Gátu ekki hugsað rökrétt
- Rifust útaf engu
- Og neituðu að biðjast afsökunar þótt þeir hefðu rangt fyrir
sér.


Að teknu tilliti til ofangreindar þátta er sterklega varað við
bjórdrykkju meðal karlmanna.