Dag einn var Pési að kvarta við vin sinn, “mér er alveg hrikalega
illt í olnboganum. Ég held að ég verði að fara til læknis”.
Félaginn sagði, “ekki gera það, það er komin alveg ótrúleg vél niðrí apótek sem getur sagt þér nákvæmlega hvað það er sem hrjáir þig. Það er mikið fljótlegra og ódýrara en að fara til læknis. Þú setur bara þvagsýni í vélina og hún segir þér hvað er að þér og hvað þú átt að gera í því, og það kostar bara 500 kall”.
Pési ákvað að hann hefði engu að tapa og fór með þvagsýni í
apótekið.
Þegar hann var kominn þangað hellti hann sýninu í vélina og borgaði
500 kallinn. Vélin fór að framkalla skrítin hljóð og fullt af ljósum blikkuðu.
Eftir smá stund kom prentaður miði úr vélinni sem á stóð: Þú ert með tennisolnboga. Láttu hendina liggja í heitu vatni, vefðu heitum
bökstrum um olnbogann og forðastu erfiðis vinnu, þá ættir þú að vera orðinn betri eftir tvær vikur.
Seinna um kvöldið var hann enn að hugsa um hversu mögnuð vélin væri
og datt allt í einu í hug hvort ekki væri hægt að plata hana, eftir smá umhugsun ákvað hann að reyna. Hann blandaði saman krana vatni, hunda skít úr hundinum sínum og þvagsýnum úr bæði konu sinni og dóttur, og til að toppa þetta runkaði hann sér í blönduna. Daginn eftir fór hann í apótekið, hellti blöndunni í vélina og borgaði 500 kallinn.
Vélin byrjaði strax að blikka ljósum og framleiða hávaða og prentaði síðan út eftirfarandi greiningu:

Lagnirnar hjá þér eru ryðgaðar, hringdu á pípara.
Hundurinn þinn er með orma, farðu með hann til dýralæknis.
Dóttir þín notar kókaín, sendu hana í meðferð.
Konan þín er ólétt, þú átt það ekki, fáðu þér lögfræðing.
Hættu að runka þér annars batnar þér aldrei í olnboganum!


Það var einu sinni að ungum manni langaði til að kaupa afmælisgjöf handa elskunni sinni.
Þar sem að þau höfðu ekki verið lengi saman þá ákvað hann eftir mikla íhugun að hanskar
væru rétta gjöfin: rómantískt en ekki of persónulegt.
Í fylgd með yngri systur kærustunnar fór hann og keypti par af hvítum hönskum.
Systirin keypti sér hinsvegar nærbuxur.
Þegar afgreiðslumaðurinn var að pakka inn þá ruglaði hann þessu saman og systirin
fékk hanskana en kærastan fékk nærbuxurnar.
Án þess að athuga innihaldið þá innsiglaði ungi maðurinn pakkann og sendi til kærustunnar
ásamt miða sem á stóð:
Ég valdi þetta af því að ég tók eftir því að þú hefur ekki haft það að vana
að klæðast þessu þegar við förum út á kvöldin.
Ef systir þín hefði ekki hjálpað þá hefði ég valið löngu með tölunum en hún
klæðist styttri sem er auðveldara að ná af.
Þetta er í ljósum lit, en konan ég keypti þetta hjá sýndi mér parið sem hún hafði
verið í síðastliðnar þrjár vikur og það sá varla á þeim. Ég lét hana máta þetta sem ég keypti
og það fór henni mjög vel.
Ég vildi að ég gæti verið hjá þér til að vera sá fyrsti sem hjálpaði þér í,
þar sem að það leikur enginn vafi á því að aðrar hendur munu snerta áður en
ég hef tækifæri á því að sjá þig aftur.
Þegar þú ferðu úr, mundu þá eftir að blása í þær áður en þú leggur þær frá þér
þar sem að þær munu náttúrulega vera nokkuð rakar eftir notkun.
Hugsaðu þér bara hvað ég mun koma til með að kyssa þær oft á komandi ári!