Hvernig á að losa sig við makann ??
1. Taktu uppá að strauja allt mögulegt, td sokka, dagblöð, servíettur osfr. Talaðu sífellt um hvað það fari í taugarnar á þér hvað rúmfötin séu alltaf krumpuð á morgnanna, sérstaklega hennar megin. Taktu jafnvel uppá því að vakna sérstaklega um miðja nótt til að skipta um rúmföt, enn betra er að strauja þau sem fyrir eru.
2. Byrjaðu að safna klósettburstum. Hafðu þá á áberandi stað í íbúðinni og raðaðu þeim daglega upp eftir því hverjir eru í uppáhaldi þann og þann daginn. Sýndu gestum þá stoltur og kynntu með nafni.
3. Talaðu um að þér finnist ekkert jafnvægi í heiminum og allt stefna til hægri. Minnstu síðan alltaf á það ef þú sérð einhvern taka hægri beygju eða nota hægri hönd osfr. þínu máli til stuðnings.
Pirrandi
4. Horfðu á allar íþróttir sem þú kemst yfir og vertu miður þín ef það endar ekki með jafntefli. Ef annað liðið vinnur talaðu þá um hvað tapliðinu hljóti að líða illa og segðust þurfa að fá smá tíma einn til að jafna þig. Sá tími má gjarnan vera nokkrir dagar.
5. Hafðu alltaf með þér ælupoka, svona just in case. Kúgastu í pokann við öll möguleg tækifæri.
6. Boraðu í nefið án afláts og segðu henni að “sá stóri” fari að koma. Þetta sé bara tímaspursmál.
Leiðinlegur
7. Segðu alltaf “nei”, en sýndu lygaramerkið á puttunum ef svarið á að vera “já”. Td ef hún spyr hvort þú viljir að hún fari (sem ætti að vera orðið nokkuð ljóst á þessu stigi).
8. Talaðu um fjölskyldu hennar sem “Blóðsugurnar” og taktu ávallt hvítlauk og viðarkross með þér þegar þið farið í heimsókn til þeirra.
9. Reyndu að fá hana til að skrifa undir lögbundinn samning þess efnis að hún sé “þín eign”. Segðu að þetta sé bara formsatriði og sé venja þar sem þú ólst upp.
10. Hættu að tala. Algjör þögn gerir kraftaverk og er eitt albeittasta vopnið í andlegum hernaði. Ef hún talar við þig þá skaltu bregðast reiður við og öskra “NÚ ÞARF ÉG AÐ TELJA ALLT UPPÁ NÝTT!!!” og halda áfram að horfa á sjónvarpið.
Örþrifaráð
11. Segðu henni að þú ætlir að fara í bæinn og kaupa e-ð til að hressa uppá ástarlífið ykkar og komdu heim með páfagauk. (Hún bíður sennilega ekki eftir útskýringum)
11 aðferðir til að losna við karlinn
Trúarleiðin
1. Farðu með Faðir vorið í síbylju á meðan þið elskist. Eftir ástaratlotin gefurðu honum 1 til 10 Maríubænir miðað við frammistöðu.
2. Hringdu í mormóna eða/og votta jehóva og bjóddu þeim í heimsókn á laugardögum þegar liðið hans er að spila í beinni.
3. Efastu um tilvist alls sem ekki er sérstaklega talað um í Biblíunni. Hafðu hana alltaf meðferðis og flettu upp í henni til að athuga hvað sé ”í lagi” og hvað sé ”verk satans”.
Afbrýðisemi
4. Skrifaðu lista með vel yfir hundrað karlmannsnöfnum og skráðu 1 til 10 Maríubænir fyrir aftan hvert þeirra. Hafðu jafnvel dagsetningar með en passaðu þá að það séu dagsetningar þar sem hann var fjarverandi. Skildu listann ”óvart” eftir á eldhúsborðinu.
5. Gerðu lítið úr meti Annabell Chong. Kallaðu hana aldrei annað en ”nunnuna”.
6. Talaðu um alla fyrrverandi elskhuga sem ”Folann”, ”Herkúles”, ”Maskínuna” osfr.
Subba
7. Hættu að þvo þér. Segðu honum að líkaminn hreinsi sig sjálfur sé honum gefinn tími til þess. Það taki að vísu fjórar til sex vikur, en sé vel þess virði.
8. Hafðu sérstaka fötu á klósettinu fyrir notaðan klósettpappír.
9. Hræktu á bakið á honum við hvert gefið tækifæri. Haltu fram að þetta boði gæfu.
Hræðsla
10. Segðu honum að nýi 18 mánaða hormónakúrinn þinn eigi eftir að koma skemmtilega á óvart. Sýndu skyndilegan áhuga á fótbolta og bardagaíþróttum og klóraðu þér í klofinu við hvert tækifæri. Hlæðu hátt ef einhver leysir vind nálægt þér og reyndu að svara í sömu mynt.
Örþrifaráð
11. Menn eru alveg óútreiknanlegir og allar ofantaldar aðferðir geta virkað þveröfugt á hann. En ef hann er ekki farinn á þessu stigi þá er hann greinilega það heftur andlega að þú ættir að geta látið svipta hann sjálfræðinu og lagðan inn. Ef það tekst reyndu þá að fá hann lagðan inn á dýraspítala og láta svæfa hann. Þetta er auðvitað langsótt en hérna erum við líka að tala um algjöra örvæntingu