Tilkynning til íslenskra karlmanna

Lögreglan vill vara alla karlkyns skemmtanafíkla, partý-sækjendur og þá sem sækja öldurhús og biðja þá um að vera á varðbergi þegar kona býður þeim í glas. Nauðgunarlyfið er kallað BJÓR, og er mestmegnis í fljótandi formi.
Þetta lyf er nú notað af kvenkyns kynlífsfíklum til að fá karlkyns
fórnarlömbin til að stunda kynlíf með þeim. Það ótrúlega við þetta allt saman að hægt er að nálgast bjór nánast alls staðar. Það eina sem að konurnar þurfa að gera er að kaupa einn til tvo bjóra handa karlinum og biðja hann svo að koma með sér heim í skuldbindingalaust kynlíf.
Karlmenn eru bókstaflega hjálparvana þegar svona árásir eiga sér stað. SENDIÐ þetta á alla þá karlmenn sem þið þekkið… Hins vegar, ef að þið verðið fórnarlamb svona lyfjakenndar og undirförular árásar af þessum kvenkyns kynlífsfíklum, þá eru karlkyns stuðningshópar í öllum úthverfum þar sem þú getur rætt í smáatriðum þessa árás sem þú varðst fyrir á opin og heiðarlegan hátt við hóp af samsvarandi þenkjandi mönnum sem hafa lent
í svipaðri lífreynslu.
Til að finna næsta vettvang þessara stuðningshópa leitið að “KRÁ” í gulu síðunum.

Lögreglustjóraembættið