Ég veit að sumt af þessu hefur komið áður undir nafninu gagnlausar staðreyndir, en mér var sent þetta og here it comes

Fiðrildi geta bragðað með fótunum.

Kvak andar bergmálar ekki og enginn veit hvers vegna.

Á tíu mínútum leysir fellibylur meiri orku en er öllum
kjarnorkuvopnum í heiminum samanlagt.

Að meðaltali kafna 100 manns á kúlupennum árlega.

Að meðaltali er fólk hræddara við köngulær en dauðan.

90% af leigubílunum er ekið af nýkomnum innflytjendum.

35% af fólki sem notar persónuauglýsingar í dagblöðum fyrir
stefnumót eru gift.

Fílar eru einu dýrin sem geta ekki hoppað.

Aðeins 1 af hverjum 2 milljörðum munu lifa til 116 ára
aldurs.

Það er mögulegt að leiða kýr upp stiga en ekki niður.

Konur blikka augunum næstum tvöfalt oftar en karlar.

Það er líkamlega ómögulegt að sleikja olnbogan á sjálfum sér.

Snigill getur sofið í 3 ár.

Ekkert orð í ensku rímar við “month”.

Augun á okkur eru alltaf jafn stór frá fæðingu, ! en nefið
og eyrun hætta aldrei að vaxa.

Allir snjóbirnir eru örvhentir.

Forn-egypskir prestar plokkuðu ÖLL hár af líkamanum,
líkaaugnbrúnirnar og augnhárin.

Augun í strútum eru stærri en heilinn í þeim.

TYPEWRITER er lengsta orðið sem hægt er að skrifa með
aðeins einni röð á lyklaborðinu.

Krókódílar geta ekki rekið tunguna út.

Sígarettukveikjarinn var fundinn upp á undan eldspýtunum.

Ameríkanar borða að meðaltali 18 ekrur af pizzu hvern
einasta dag.