Einn sígyldur mömmubrandari

Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi sem nýlega
hefur fundist greining á, en engin lækning við, enn sem komið er.
Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp : Ég
ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók þá
eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna. Ég tók bréfin og ákvað að fara
í gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn. Sorteraði póstinn og
ákvað að
henda ruslpóstinum en tók þá eftir að ruslafatan var orðin full og lagði
því
reikningana sem höfðu borist, frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með
ruslið, en ákvað þá að fara og borga þessa reikninga, fyrst ég yrði við
bílinn hvort eð er. Fór inn í herbergi til þess að ná í veskið og
bíllyklana
en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo ég
gleymdi því ekki. Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst. Á leið inn í
eldhús tók ég eftir því að blómið í borðstofunni var orðið heldur þurrt.
Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva blómið áður en lengra
væri haldið. Náði í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með vatni þegar
ég tók eftir því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu.
Ákvað að fara með hana á sinn stað í sjónvarpsherberginu fyrst, svo ég
fyndi hana örugglega um kvöldið þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið
að horfa á
uppáhaldsþáttinn
“Sex in the City”. Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á handklæði sem ég
ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti. Fór þangað og
setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að leita að fyrr
um morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og fór með
gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna þau
þegar ég færi í
rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína……ef ég finn hana. Stoppaði í
svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki lengur hvað ég
ætlaði upphaflega að fara að gera !!! Í lok dags hafði ég því hvorki
þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki vökvað blómin eða þvegið
þvottinn, ekki farið út
með ruslið, heldur ekki svarað e-mailunum og var auk þess búinn að týna
fjarstýringunni, bíllyklunum og veskinu og kaffið beið kalt á
eldhúsborðinu.
Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum
snúningum. Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég
ætla að
leita mér hjálpar við. Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða “Age
Activated Attention Deficit Disorder”, á íslensku “Aldurstengdur
athyglisbrestur”.