Í heimi rómantíkurinnar, verða menn að fylgja einni einfaldri reglu: Gerðu konuna hamingjusama.
Gerirðu eitthvað sem henni líkar safnaru stigum. Gerirðu eitthvað sem henni mislíkar mun stigunum fækka.
Þú færð engin stig fyrir eitthvað sem hún býst við - því miður, þannig eru leikreglurnar.

Félagslegar aðstæður:
Þú stendur við hlið hennar allt partýið => 0
Þú stendur við hlið hennar í dálítinn tíma, svo ferðu að tala við fullan félaga => -2
Sem heitir Tiffany => -4
Tiffany er dansari => -6
Tiffany er með sílikon => -8
Þegar þú blandar geði, þá helduru í höndina á kærustunni og horfir ástúðlega til hennar => -1
Þegar þú blandar geði, þá kynniru hana sem “gamlan kunningja” og klappar henni á rassinn => -5
Þegar hún bendir á algjöra gellu og spyr hvort hún sé falleg þá segiru : Já, en alls ekki jafn falleg og þú => +1
Þegar hún bendir á konu og spyr hvort þér finnist hún falleg þá segiru: Já, en hafðu engar áhyggjur,
hún er ömurleg í rúminu => -6
Konan er systir hennar => -90
Þú færð þér drykk og ekkert meira => 0
Þú færð þér meira en nokkra og dansar tangó => -2
Þú færð þér marga drykki og manst óljóst eftir því þegar það eru tekin fingraför af þér => -18

Laugardags síðdegi:
Þið farið saman í Kringluna => +3
Þið farið í Kringluna, þú hleypir henni út við innganginn og leggur bílnum => +4
Svo ferðu á Sportkaffi => -2
Þú eyðir deginum í að skoða húsgögn og þykist skemmta þér => +3
Þú eyðir deginum í Bónus og kaupir mikið => +3
Meirihlutinn af því er snakk og bjór => -6
Þú fæst við stórt heimilisverk, svo sem að mála bælið => +15
Laga gólfin => +19
Endurleggja raflagnirnar í kjallaranum => +21
Eða bæta við annarri hæð => +25
Þú heimsækir foreldra hennar => +1
Þú heimsækir foreldra hennar og heldur uppi samræðum =>+3
Þú heimsækir foreldra hennar og starir tómlega á sjónvarpið => -3
Og það er slökkt á sjónvarpinu => -6
Og þú eyðir síðdeginu í að glápa á fótbolta í sjónvarpinu á nærfötunum => -6
Og þú fórst ekki einu sinni í menntaskóla => -10
Drekkur bjór => -12
Og þetta eru ekki þín nærföt => -15

Afmælið hennar:
Þú býður henni út að borða => 0
Þú býður henni út að borða og það er ekki á Sportkaffi => +1
Allt í lagi, það er Sportkaffi => -2
Og það er “hámaðu-í-þig” kvöld => -3
Það er Sportkaffi, það er “hámaðu-í-þig” kvöld, og andlitið þitt er málað eins og litirnir í uppáhalds
fótboltaliðinu þínu => -10
Þú ferð á flottan, dýran veitingastað og ræður leigu gítarleikara => -3
Þú stendur upp og syngur => +4
Og þú ert glataður => +2
Og þú ert alls ekki slæmur => +5
Þú syngur lag með AC/DC, og þú færð mikið klapp => -2
Þú gefur henni gjöf => 0
Það er verkfæri => -20
Það er lítið tæki => -10
Það er ekki lítið tæki => +1
Það er ekki súkkulaði => +2
Gjöf sem mun borga sig í marga mánuði => +30
Þú bíður fram á síðustu mínútu og kaupir gjöfina þann daginn => -10
Með greiðslukortinu hennar => -30
Og það sem þú kaupir er tveimur stærðum of stórt => -40
Og þú gleymir útsölumiðanum á => -50

Hugulsemi:
Þú gleymir afmælinu hennar algjörlega => -10
Þú gleymir brúðkaupsafmælinu ykkar => -20
Þú gleymir að sækja hana á flugvöllinn => -25
Sem er í Newark, New Jersey => -35

Kvöld með strákunum:
Þú ferð út með vini => -5
Og vinurinn er hamingjusamlega giftur => -4
Eða óhugnalega einhleypur => -7
Hann ekur um á Trans Am => -10
Með einkanúmeri (GR8 N BED) => -15
Þið fáið ykkur nokkra bjóra => -5
Og komið klukkutíma of seint heim => -10
Þú kemur heim klukkan 3 um nótt => -20
Það er áfengislykt af þér og fnykur af ódýrum vindlum => -30
Og þú ert ekki í buxum => -40
Er þetta tattú??? => -200

Úti á lífinu:
Þú ferð með henni í bíó => +2
Þú ferð henni á mynd sem hún vill sjá => +4
Á mynd sem að þú hatar (hvað sem er með Barböru Streisand) => +6
Á mynd sem að þú vilt sjá => -2
Hún heitir Death Cop 3 => -7
Í henni eru geimverur að elskast => -9
Þú laugst og sagðir að þetta væri útlensk mynd um munaðarleysingja og hunda => -15
Þegar hún spyr þig hvernig hún líti út þá svararu “vel” eða “þokkalega” => 0
Þú svarar “falleg” eða “glæsilega” => +5
Þú svarar án þess að vera spurður => +10
Þú tekur einhverju sérstöku sem hún gerði (hár, neglur, augnhár) => +15
Þú minnist á það að þér finnist nýja hárgreiðslan hennar flott => +15
Hún segir að hún hafi gert þetta í síðustu viku => -10

Blóm:
Þú gefur henni blóm bara þegar þess er ætlast => 0
Þú gefur henni blóm óvænt, bara í gamni => +5
Þú veist hvað hvað nokkur þeirra heita => +8
Þú kannt nöfnin á þeim öllum af því að þú valdir þau => +10
Þú gefur henni villt blóm sem þú valdir sjálfur => +10
Úr garði nágrannans => -25

Líkamlegt ástand þitt:
Þú færð bumbu => 0
Þú færð sýnilega bumbu => -10
Þú færð bumbu og þjálfar til að losna við hana => +10
Þú tekur ástfóstri við víðar gallabuxur og víðar Hawaii skyrtur => -5

Keyrandi:
Þú týnir leiðbeiningunum í ferðalagi => -4
Þú týnir leiðbeiningunum og endar með því að týnast => -10
Þú neitar að spyrja til vegar => 0
Það endar með því að þú týnist í slæmu hverfi => -15
Þú vingast við fólkið þar => -25
Hún kemst að því að þú laugst um að hafa verið með svarta beltið => -60

Samskipti:
Þegar hún vill tala um vandamál => -5
Þá hlustaru og setur upp skilningsríkan svip => 0
Hún áttar sig á því að sjónvarpið er fyrir aftan hana => -10
Þú hlustar í meira en hálftíma => +5
Meira en hálftíma, án þess að horfa á sjónvarpið => +10
Hún áttar sig á því að það er af því að þú varst sofnaður => -10

Stóra spurningin:
Hún spyr “Er ég feit?” => -5
Þú hikar við að svara => -10
Þú þykist ekki heyra => -12
Þú svarar “hvar?” => -25
Þú svarar “miðað við hvað?” => -30
Þú svarar “en ég vil hafa þig svoleiðis” => -35
Þú svarar “ekki miðað vil hvað þú ert gömul” => -40
Við erum alheimurinn, vaknaður til vitundar um sjálfan sig