af hverju er betra að vera karl en kona (c/p af batman.is)

69 ástæður

69 ástæður fyrir því af hverju það er betra að vera karlmaður

1. Símtöl vara ekki lengur en 30 sekúndur.
2. Það er nánast alltaf fólk af gagnstæðu kyni sem sést bert í bíómyndum.
3. Þú veist eitthvað um vélar, tæki og tól.
4. Þegar þú ferð í fimm daga frí þarftu bara á einni tösku að halda. við getum líka leikið í byssó…
5. Enski boltinn.
6. Biðröðinn á klósettinu er miklu styttri.
7. Þú getur opnað sultu krukkurnar sjálfur.
8. Félagar þínir gera ekki veður út af því þótt þú fitnir.
9. Þegar þú flakkar á milli stöðva þarftu ekki að stoppa þótt einhver sé að gráta á einni þeirra.
10. Það veltur ekki á rassinum á þér hvort þú fáir vinnu eða ekki.
11. Þú færð alltaf ekta fullnæingu.
12. Þú getur náð þér í kvenmann þótt þú sért með ístru.
13. Þér er hjartanlega sama þótt Pamela Anderson geti ekki leikið.
14. Þú þarft ekki að ganga með handtösku.
15. Þú getur tékkað þig út af hóteli þó svo að herbergið sé í rúst.
16. Þú færð af þér að drepa það sem þú ætlar að borða.
17. Bílskúrinn þinn er sérherbergi.
18. Þú vinnur þér inn ótal prik hjá hinu kyninu með örlítilli tillitsemi.
19. Þótt einhver finni að verkum þínum í vinnuni þýðir það ekki að öllum líki illa við þig.
20. Þú getur farið í sturtu og skipt um föt á innan við tíu mínútum.
21. Þú getur sofið hjá úti um allar trissur án þess að missa mannorðið.
22. Það eru einhverjir aðrir sem sjá um að hafa áhyggjur af brúðkaupinu þínu.
23. Þú getur keypt þér nærföt Þrjú saman í pakka á 999 krónur.
24. Enginn af vinnufélögunum getur komið þér til að gráta.
25. Þú þarft ekki að raka þig fyrir neðan háls.
26. Það angrar engan þótt þú sért orðinn 34 og enn þá ógiftur.
27. Þú getur skrifað nafnið þitt með gulu í snjóinn.
28. Andlitið á þér er í upprunalegum litum.
29. Þú lítur á súkkulaði sem mat.
30. Þú mátt prumpa.
31. Þú getur setið við hliðina á fólki án þess að finnast þú þurfa aðm segja eitthvað.
32. Það er sama hvað hvað þú gerir, þú getur alltaf lagað það með blómum og gjöfum.
33. Þú getur farið út í rigningu í bol án þess að það kosti eftirmál.
34. Þér duga þrjú pör af skóm.
35. Þú getur borðað banana á dekkjaverkstæði án þess kallarnir leggi í það einhverja merkingu.
36. Það má sleppa forleiknum þín vegna.
37. Fyrir þér er George Clooney ekki til.
38. Þeir sem segja klámbrandara þagna ekki þegar þú kemur inn í herbergið.
39. Þú getur farið úr að ofan ef þér er heitt.
40. Þú þarft ekki að taka til í íbúðinni þótt einhver frá Rafmagnsveitunni sé að koma að lesa af mælinum.
41. Þú þarft ekki að hafa vit fyrir vinum þínum þótt þeir séu á leiðinni heim með ljótri belju.
42. Bifvélavirkar ljúga ekki alltaf að þér.
43. Þú getur hlegið að Titanic.
44. Þér er sama þótt einginn taki eftir nýju klippingunni þinni.
45. Þú getur pissað hvar sem er.
46. Þú þarft ekki að bera heitt vax á fótleggina.
47. Þú skiptir skapi vegna ytri ástæðna, ekki eftir stöðu tunglsins.
48. Þér finnst Clint Eastwood góður en þú þarft ekki að fara í megrun vegna þess.
49. Þú hættir ekki við að taka bensín vegna þess að bensínstöðin er sóðaleg.
50. Þú getur setið gleiður sama hvernig þú ert klæddur.
51. Grátt hár, hrukkur og önnur aldursmerki gera þíg flottari.
52. Þú þarft ekki að fara afsíðis þótt þig klæji í kynfærin.
53. Þegar einhver baktalar þig þá er það hans vandamál ekki þitt.
54. Þú sendir frá þér 400 milljónir af sáðfrumum í einu kasti og gætir því tvöfaldað íbúafjölda jarðarinnar í 15 tilraunum!!
55. Fólk glápir ekki á brjóstin á þér þegar þú talar við það.
56. Þú getur heimsótt vini þína án þess að færa þeim gjöf.
57. Það þýðir ekki vinaslit þótt einhver gleymi að bjóða þér í veislu.
58. Steggjapartí eru skemmtilegri en gæsapartí - víst.
59. Þú ert í eðlilegu sambandi við mömmu þína og hún er hætt að stjórna lífi þínu.
60. Þú getur keypt þér smokka án þess að apótekarinn ímyndi sér hvernig þú lítir út nakinn.
61. Þú þarft ekki að segja að þú sért að fara að púðra á þér nefið þegar þú þarft að kúka.
62. Vinur þinn fer ekki fýlu út í þig þótt þú hringir ekki eins og um var talað.
63. Þú þarft ekki að fara heim úr veislu og skipta um föt þótt einhver sé í svipuðum fötum og þú.
64. Það reikna eiginlega allir með því að þú fitnir með aldrinum.
65. Þú mátt lemja sjónvarpið og sparka í sjálfsala ef þetta drasl hlýðir þér ekki.
66. Þú hættir að ganga í skóm sem meiða þig.
67. Þú þarft ekki að muna hvenær allir eiga afmæli.
68. Þótt þú sért ekki hrifin af einhverri stúlku þýðir það ekki að þú megir ekki sofa hjá henni.
69. Þú færð meira kaup en kona fyrir sömu vinnu.


BTW. Þetta er allt copy/paste…

HEHEHE SNILLD (fullt af bröndurum)