Kona kann að grínast Hjón ein héldu til veiða í norðurhluta Minnesota.
Eiginmanninum þótti best að fara út á vatn til
veiða í birtingu, en eiginkonan kunni best við
sig heima í tjaldi að lesa. Morgun einn kemur
maðurinn til baka eftir nokkurra klukkutíma veiði
á vatninu og ákveður að leggja sig. Konunni
dettur þá í hug að fara á bátnum út á vatn, þótt
hún væri óvön bátnum. Hún setur utanborðsmótorinn
í gang, siglir út á vatn nokkurn spöl, leggst
við stjóra og fer að lesa. Að nokkurri stund
liðinni birtist veiðivörðurinn á bát sínum, leggur
við bát konunnar og segir: Góðan daginn frú, hvað
ert þú að gera hér? -Lesa bók
( eins og það sé ekki augljóst - hugsar hún)
Þú ert hér á bannsvæði,
hér má ekki veiða, segir vörðurinn Ég er ekki að
veiða, ég er bara að lesa, svarar konan Já, en
þú ert með allan búnað til veiða, mótmælir
veiðivörðurinn, ég verð fara með þig í land og
skrifa þig upp. Ef þú gerir það, svarar konar,
verð ég að kæra þig fyrir kynferðislega áreitni.
En ég hef ekki einu sinni snert þig, segir
vörðurinn afsakandi. Það er alveg satt, en þú
hefur allan búnað til þess!
Boðskapur: Deildu aldrei við konu sem les. Það
mjög sennilegt að hún geti líka hugsað!