Málfræðin er ekki svo galin og þá sérstaklega þegar kemur að því að
flokka orð í kyn. Nokkrar góðar skýringar á því hvers vegna orð eru
karlkyns eða kvenkyns:

Svissneskur vasahnífur: Karlkyns, því þó að hann virðist til margs
nýtilegur, eyðir hann mestum tíma sínum í að opna flöskur.

Loftbelgur: Karlkyns, því til að koma honum þangað sem þú vilt, þarftu
að kveikja undir honum… fyrir utan heita útblástursopið neðst á
honum.

Vefsíða: Kvenkyns, því það er alltaf verið að fara á hana.

Skór: Karlkyns, því vanalega er hann ótilhafður með tunguna úti.

Ljósritunarvél: Kvenkyns, því þegar það er slökkt á henni, tekur heila
eilífð að hita hana upp aftur. Og þegar hún er orðin heit, er hún
gagnleg til fjölföldunar ef ýtt er á réttu takkana og vegna þess að
allt fer í steik ef ýtt er á vitlausa takka.

Sjálflokandi pokar: Karlkyns, vegna þess að þeir geta haldið öllu
inni, það sést alltaf í gegnum þá.

Strætó: Karlkyns, vegna þess að þeir nota alltaf sömu gömlu leiðina
til að ná í fólk.

Hamar: Karlkyns, vegna þess að þrátt fyrir að hafa ekki þróast neitt í
fjölda ára, þá er alltaf gagnlegt að hafa einn á heimilinu.

Fjarstýring: Kvenkyns, því hún veitir karlmönnum ánægju, hann er
ómögulegur án hennar og þrátt fyrir að hann viti ekki hvaða takka eigi
að ýta á, þá reynir hann alltaf áfram.

Hjólbarði: Karlkyns, því hann verður sköllóttur fyrir rest, oft er of
mikið loft í honum og stundum verður hann vindlaus.

Stundaglas: Ætti að vera kvenkyns, því eftir því sem tíminn líður
færist þyngdin neðar.

Nýru: Ættu að vera kvenkyns, því þau fara alltaf á salernið tvö saman.