Í tilefni af komandi páskaeggja-málsháttum:
>
>
>Betra er að ganga fram af fólki en björgum.
>
>Betra er langlífi en harðlífi.
>
>Heima er best í hófi.
>
>Enginn veit sína kæfuna fyrr en öll er
>
>Betra er að standa á eigin fótum en annarra.
>
>Þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst.
>
>Oft veldur lítill stóll þungum rassi.
>
>Oft er bankalán ólán í láni.
>
>Ekki dugar að drepast.
>
>Eitt sinn skal hver fæðast.
>
>Sjaldan fara sköllóttir í hár saman.
>
>Oft eru bílstjórar útkeyrðir.
>
>Flestar gleðikonur hafa í sig og á.
>
>Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga.
>
>Betra er að hlaupa í spik en kekki.
>
>Betri eru kynórar en tenórar.
>
>Betra er að sofa hjá en sitja hjá.
>
>Til þess eru vítin að skora úr þeim.
>
>Auðveldara er að fá leigt í miðbænum en guðanna bænum.
>
>Oft fara hommar á bak við menn.
>
>Oft eru dáin hjón lík.
>
>Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum.
>
>Betra er að fara á kostum en taugum.
>
>Margri nunnu er “ábótavant”.
>
>Oft hrekkur bruggarinn í kút.
>
>Margur bridsspilarinn lætur slag standa.
>
>Oft eru bílstjórar vel á veg komnir.
>
>Oft fara bændur út um þúfur.
>
>Víða er þvottur brotinn.
>
>Oft fer presturinn út í aðra sálma.
>
>Margur bóndinn dregur dilk á eftir sér


Kveðja sopranos