Tveir vinir voru saman í útilegu í Ástralíu, þeir voru nýbúnir að koma sér fyrir þegar annar ákvað að fara að míga. Allt í einu heyrist skaðræðis öskur og félaginn kemur hlaupandi út úr runnanum og gargar; “SNÁKUR BEIT MIG Í TIPPIÐ!!”. Hinn segir honum að bíða á meðan hann fer í bæinn og nær í lækni. Þannig að hann fer í bæinn og eftir langa mæðu finur hann lækni.
“Læknir!! Vinur minn var bitinn af snáki!!!” segir vinurinn, “það er allt í lagi” segir læknirinn “eina sem þú þarft að gera er að sjúga eitrið úr”.
Vinurinn þakkar honum fyrir og flýtir sér til baka. Þegar að hann kemur öskrar slasaði vinurinn á hann, “HVAÐ SAGÐI LÆKNIRINN, HVAÐ SAGÐI HANN?”
“Hann sagði að þú ættir engan möguleika”.