Hér eru nokkrir hörmulegir sem að ég sá í bók einni er nefnist 1000 Gátur frá Vöku-Helgafell. Þess skal geta að brandararnir sem koma hér á eftir geta valdið kláða:


1. Hvað stóð á skiltinu sem að tannlæknirinn á Mars hengdi á gluggann sinn þegar hann fór til Jarðar?

Lokað vegna Jarðarfarar!

2. Hvaða húseignandi borgar ekki húseignaskatt?

Snigill!

3. Hvað dregur mús jafn auðveldlega og fíll?

Andann!

4. Hvað getur fullvaxta maður borðað mörg egg á fastandi maga?

Aðeins eitt. Eftir það er það ekki á fastandi maga!

5. Hvaða steinar eru algengastir á hafsbotni?

Blautir steinar!

6. Hvert fljúga fuglarnir á veturna?

Í þá átt sem að nefið á þeim snýr!

Royal Fool
Bringing smiles to sappy faces