Einu sinni þá labbaði Geimvera inn á gay bar og stillti sér upp við barinn. Allt í einu þá kom ógeðslega feitur og viðbjóðslegur vörubílstjóri, stillti sér upp við barinn og pantaði bjór. Geimveran horfði í smá stund á vörubílstjórann svo potaði hún í öxlina á manninum og sagði “BLÚPP,BLÚPP,BLÚPP”.
Maðurinn sneri sér við og sagði “ hey þú… ef þú gerir þetta aftur þá sker ég af þér hausinn”
Geimveran hugsaði sig um og potaði síðan aftur í öxlina á honum og sagði “ BLÚPP,BLÚPP,BLÚPP”
Maðurinn tók upp hníf og skar af geimverunni hausinn en það óx bara strax nýr í staðinn. Þannig að geimveran bara endurtók þetta. Maðurinn var orðinn frekar pirraður og sagði “ef að þú gerir þetta einu sinni enn þá sker ég undan þér”
Geimveran hugsaði sig smá um, glotti svo og potaði í hann og sagði “BLÚPP,BLÚPP,BLÚPP”
Við þetta brjálaðirst maðurinn og girti niður um geimveruna… en það var ekkert þarna. Maðurinn stóð aftur upp og spurði “ Hvernig í andskotanum stundar þú kynlíf”
Geimveran glotta, potaði svo í öxlina á manninum og sagði “BLÚPP,BLÚPP,BLÚPP”

Ef að maður er að segja einhverjum þennan brandara þá er langbest að pota í öxlina á honum og segja blúpp hljóðiði þegar að geimveran er að gera það ;)