Af hverju fór kjúklingurinn yfir götuna?
Til að komast yfir götuna.


Af hverju fór kalkúninn yfir götuna?
Kjúklingurinn var í fríi.


Af hverju fór bóndinn yfir götuna?
Til að leita að kjúklingnum sínum.


Af hverju fór risaeðlan yfir götuna?
Það var fyrir tíma kjúklingsins.


Af hverju fór froskurinn yfir götuna?
Kjúklingurinn fór yfir götuna.


Af hverju fór tyggigúmíið yfir götuna?
Það var fast við fótinn á kjúklingnum.


Af hverju fór apinn yfir götuna?
Það var banani hinu megin.


Af hverju fór froskurinn yfir götuna?
Einhver hrekkjalómur hafði límt hann fastan við kjúklinginn.


————————————- ——————————


Hvað er grátt, með stór eyru og í stuttbuxum?
Mús í sumarfríi.


Hvað sagði Tarsan þegar fílarnir komu yfir hæðina?
,,Þarna koma fílarnir“.


Hvernig skítur maður bláann fíl?
með bláu byssunni.


Hvernig drepur maður bleikann fíl?
Þú heldur fyrir ranan á honum og bíður þar til hann blánar. Þá skítur þú hann með bláu byssunni.


Hvað er grátt að innan en gult að utan?
Fíll í bananabúning.


Af hverju er ekki gáfulegt að fara með Björn í dýragarðinn?
Hann vill miklu frekar fara í bíó.


Hvernig veistu fyrir víst að það sefur fíll í rúminu þínu?
Það er stórt ,,F” á náttfötunum hans.


Hvernig kemur þú fimm fílum inn í Austin Mini?
Tveimur fram í, tveimur aftur í og einum í hanskahólfið.


Hvernig veistu að fimm fílar eru að koma í heimsókn til þín?
Það stendur Austin Mini fyrir utan.


Af hverju ganga fílar í hvítum strigaskóm?
Til að auðvelda þeim að læðast að músunum.


Af hverju var hundurinn í grænum strigaskóm?
Stigvélin hans voru hjá skósmiði.


Hvernig veiðir maður íkorna?
Fer upp í tré og hermir eftir hnetu.


Hvað er grátt og stórhættulegt?
Fíll með vélbyssu.


Af hverju borða ljón alltaf hráan mat?
Þau kunna ekki að elda.


Hvað er svart og hvítt, svart og hvítt, svart og hvítt…?
Nunna að rúlla niður brekku.


Hvað er svart og hvítt og skellihlæjandi?
Nunna sem hrinti hinni nunnunni.


Hvað er svart, hvítt, grænt, svart, hvítt?
Tveir Sebrahestar að slást um gúrku.


Hvað er grænt og rautt?
Mjög reiður froskur.


Hvað er brúnt og svart og situr upp í tré?
kúkur í leðurjakka.


Hvað er gult, blátt og hvítt og situr upp í tré?
Hef ekki hugmynd en reynið að giska sjálf.


——————————————- ————————


Einu sinni fóru mús og fíll saman í bíó. Fíllinn settist fyrir framan músina. Sá ekki neitt, varð öskureið og settist fyrir framan fílinn. Þá sagði hún ,,Núna sérðu hvernig þetta er!“


Maggi fíll og búddi maur fóru saman í sund.
Þegar Maggi fíll var komin ofan í laugina kom Búddi maur labbandi og sagði: ,,Hey Maggi, ég held að þú hafir tekið sundskýluna mína.”


Hvað er grátt, með stór eyru, tvo rana, fimm fætur og þrjá hala?
Fíll með varahluti.


————————————— —————————-

Og þá er þessu lokið.
En nú er bara spurningin: Eru þetta bestu brandarar allra tíma?

Kv. Cho