1. Vertu með hnífinn og gaffalinn á lofti allan tímann og urraðu á alla sem
koma nálægt þér og matnum þínum!
2. Safnaðu öllum saltstaukunum á borðið hjá þér og reyndu að raða þeim í
pyramida!
3. Snyttu þér í ermina hjá “deitinu”..tvisvar.
4. Grettu þig framan í aðra gesti staðarins… horfðu svo á það með
fyrirlitningarsvip!
5. Endurtaktu alltaf þriðja þrjðia orðið í hverri hverri setningu!
6. Segðu að þú hafir verið valinn skítugasti nemandinn í skólanum þínum
3 ár í röð
7. Lestu dagblað eða bók… láttu einsog þú sjáir ekki deitið
8. Starðu á hálsinn á deitinu… og gnístu tönnunum hátt
9. Vertu með mikla kippi um allann líkamann, svo þegar þú verður spurður
um þetta, láttu einsog þú vitir ekki hvað er verið að tala um !
10. Stattu upp á 5 mínútna fresti, og hermdu eftir flugvél og fljúgðu nokkra
hringi í kringum borðið
11. Pantaðu eina fötu af steikingarfeiti
12. Biddu um vaxliti og litabók
13. Flautaðu og geltu þegar konur labba framhjá borðinu…. gerðu þetta
sérstaklega ef þú ert sjálf kona!
14. Farðu í gegnum alla stefnumótasögu þína… skreyttu sögurnar
aðeins…. reyndu að segja frá einhverjum húsdyrum
15. Spilaðu á harmonikku í hverrt skipti sem deitið reynir að segja frá sjálfri
sér
16. Fórnaðu frönsku kartöflunum fyrir guðinn, Pomme!
17. Spurðu hvort veitingastaðurinn sé með einhvern lifandi mat
18. Borðaðu af disknum hjá deitinu!
19. Slefaðu!
20. Tyggðu með opinn munninn, talaðu með fullann munninn og frussaðu
um allt!
21. Borðaðu allt af disknum þínu á innan við 30sek eftir að hann er borinn
á borð
22. Afsakaðu þig til að fara á klósettið, farðu til yfirþjónsins og biddu um
annað borð annarsstaðar í húsinu. Sestu þar og pantaðu aðra máltíð. Svo
þegar deitið loksins finnur þig, kvartaðu yfir hvað hún/hann var lengi á
klósettinu!
23. Fáðu fólkið á næsta borði til að kveðast á við þig
24. Biddu fólkið á næsta borði að gefa þér afgangana
25. Grátbiddu deitið að tattoo-a nafnið þitt á lærið á deitinu….. haltu áfram
að biðja um þetta út allt kvöldið
26. Spurðu deitið hvað það sé með mikinn pening
27. Pantaðu eitthvað virkilega ógeðslegt fyrir deitið
28. Notaðu táknmál allt kvöldið… finndu upp þitt eigið táknmál
29. Þegar þið komið á veitingahúsið, biddu um borð sem er langt frá
gluggunum og þar sem þú getur setið uppvið vegg… láttu einsog þú sért
verulega stressaður!
30. Sleiktu diskinn þinn! …prófaðu að bjóðast til að sleikja aðra diska
31. Hummaðu hin og þessi lög
32. Fylltu vasana af sykurbréfum og saltstaukum og piparstaukum og
hnífapörum og blómaskreytingum… hreinlega öllu sem er ekki skrúfað fast!
33. Haltu fyrirlestur.. vertu bæði með og á móti!
34. Afklæddu deitið munnlega… notaðu gjallarhorn
35. Reyndu að skipta á deitinu og hnífapörum annara gesta
36. Farðu undir borðið… taktu diskinn með þér !
37. Pantaðu bakaða kartöflu… feldu svo kartöfluna og pantaðu aðra… svo
þegar þjóninn kemur með hana, vertu þá búinn að setja hina á sinn stað
38. Pantaðu nautstungu og vertu með ymsar samlíkingar
39. Taktu með þér púsl!
40. Talaðu um bólur og fílapensla… segðu frá eigin reynslu
41. Pegðu Palltaf P Pá Pundan Pöllum Porðum!
42. Farðu á klósettið og svo þegar þú kemur til baka, hentu á nærbuxum á
borðið, segðu að þú bara verðir að lofta aðeins út!
43. Ef að deitið borgar, pantaðu þá það allra dyrasta og tyggðu nokkra bita
og hræktu þeim jafnóðum útúr þér!
44. Taktu með þér 20-30 kerti og raðaðu þeim í kringum borðið….
sönglaðu sálma
45. Safnaðu saman beinunum úr máltíðini og segðu að þú sért að taka
þetta með heim til ömmu þinnar, því þetta sé margfalt ódyrara en að gefa
henni að “alvöru mat”..
46. Pantaðu matinn samkvæmt litum og munstri… búðu til listaverk
47. Taktu hitabrúsa með og pantaðu kaffi og helltu því yfir í
hitabrúsann….fáðu fría áfyllingu og gerðu það sama aftur
48. Haltu því fram að þjónnin hafi étið helminginn af matnum þínum
49. Sakaðu deitið um að vera að njósna!
50. Segðu að þú sért að leita að fólki í söfnuðinn þinn
51. Stattu upp, beygðu þig og rektu við…. hneigðu þig svo
52. Taktu með þér fötu…. segðu að þú verðið oft alltíeinu veikur!

…tekið af www.simnet.is/agirss/drasl/drasl.html