Ég fór í verslun um daginn. Ég var bara í 5 mínútur og þegar ég kom út var
djöfilsins andskotans lögga að skrifa sektarmiða.
Svo ég gekk að honum og sagði, “Heyrðu félagi, hvernig væri að gefa mönnum
smá sjéns ?”
Hann leit ekki við mér og hélt áfram að skrifa sektarmiðann, svo ég kallaði
hann blýantsnagandi nasista. Hann leit snögg á mig og byrjaði á því að
skrifa annann sektarmiða fyrir of slitin dekk undir bílnum.
Þá kallaði ég hann rolluríðandi, hoppandi fáráðling. Hann lauk við að skrifa
miða nr. 2 og setti hann á bílinn með fyrsta miðanum. Svo byrjaði hann að
skrifa þriðja miðann !! Svona gekk þetta í um 20 mínútur,því meira sem ég
svívirti hann, því fleiri sektarmiða skrifaði hann. Mér var í raun
andskotans sama,en þið hefðuð átt að sjá svipinn á honum þegar ég fór yfir
götuna að bílnum mínum,fór inn í hann og keyrði burt.
Hlutir….