Kona fann töfralampa liggjandi í fjörunni,hún tók hann upp og byrjaði að pússa hann,og hvað haldið þið? Út úr lampanum steig andi.Furðulostinn konan spurði hvort hún fengi ekki þrjár óskir uppfyltar?Andinn svaraði nei alls ekki.Vegna verðbólgu stöðugs samdráttar,lágra launa í löndum þriðja heimsinns og heiftarlegrar samkeppni um allan heim,get ég ekki veitt þér nema eina ósk og hvers óskar þú þér nú?konan var ekki lengi að hugsa og sagðist óska sér að það komi friður í Miðausturlöndunum.Sjáðu kortið hérna.Ég vil að þessi lönd hætti að berjast við hvert annað og það komi friður á milli þeirra.Andinn leit á kortið og hrópaði:vá er ekki í lagi með þig manneskja!Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára.Ég bý yfir miklum mætti en ekki svona miklum samt,ég held að þetta sé ekki framkvæmanlegt,þú verður að óska þér einhvers annars.
Konan hugsaði sig um dágóða stund og sagði svo :Gott og vel ég hef aldrey getað fundið rétta manninn.Hann verður að vera tillitssamur,skemmtilegur og hafa gaman af því að þrífa húsið,vera góður við fjölskyldu mína,ekki alltaf vera að horfa á íþróttirnar og trúr aðeins mér.Ég óska mér að þú gefir mér slíkan mann.
Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði:Leyfðu mér að sjá þetta fjandans kort aftur.
Tenging næst ekki við gagnagrunnsþjón: Unknown MySQL Server Host ‘cartman.hugi.is’ (11)