Veit ekki hvort þessi hefur verið hérna á huga… en alla vega:

Það var leigubílstjóri sem tók inn farþega, og hann fer af stað, svo koma þeir að ljósum, það kemur rautt ljós, en hann fer yfir.

Farþeginn spyr: “Hvað ertu að gera maður, það var rautt!!”

Leigubílstjórinn svarar: “Iss, vertu alveg rólegur, hann bróðir minn gerir þetta oft og mörgu sinnum”

Svo kemur hann að öðrum ljósum, og það er rautt, en eins og fyrr ekur hann beint yfir á rauðu, farþeginn spyr aftur, aðeins reiðari: “Ertu brjálaður, sástu ekki að það var rautt??”

Bílstjórinn svarar: “Iss slappaðu af, hann bróðir minn gerir þetta oft”

Svo koma þeir að þriðju ljósunum, enn og aftur er rautt, en hann brunar yfir fyrir það, farþeginn ætlar alveg að tryllast núna og öskrar á hann: “Ertu alveg kolvitlaus mannandskoti?? Það er rautt ljós!!”

Enn og aftur svarar bílstjórinn: “Iss, vertu ekki að æsa þig svona, hann bróðir minn gerir þetta alltaf”

Svo heldur hann áfram, og aftur koma þeir að ljósum, nema hvað að núna lendir hann á grænu ljósi, en bílstjórinn stoppar bílinn, farþeginn alveg furðu lostinn spyr:

“Bíddu… það er grænt, af hverju ferðu ekki yfir?”

Bílstjórinn svarar: “Ja… sko, hann bróðir minn gæti verið á hinni akreininni”