ég veit að þetta á kannski ekki heima hér en ég fann engan betri stað fyrir þetta svolítið sniðugt hef rekist á þetta bæði á netinu
jæja þið verðið að meta hvort sé betra að vera:

Karl
Lægri símakostnaður - Við tölum bara hálfa mínútu í einu.
Við vitum margt sem gott er að vita um skriðdreka og flugvélar.
Við þurfum bara að pakka niður í eina ferðatösku þegar við förum í frí.
Við getum opnað krukkur sjálfir.
Gömlum vinum er alveg sama hvort við höfum fitnað eða lagt af.
Við getum flakkað milli rása með fjarstýringunni án þess að nokkur öskri.
Við þurfum ekki að bera heila ferðatösku með okkur hvert sem við förum.
Við getum farið einir á klósettið.
Við getum leyft okkur að fara út af hótelherberginu án þess að búa um rúmið.
Við höfum bílskúrinn út af fyrir okkur.
Við getum alveg sleppt því að hreinsa klósettið.
Við þurfum ekki nema tíu mínútur til að fara í sturtu og komast í sparifötin.
Undirbúningur fyrir brúðkaup, jarðarfarir eða stórveislur sér alveg um sig sjálfur.
Nærföt kosta ekki nema þúsundkall - þrjú sett í pakka.
Við þurfum bara að raka okkur í framan, hvergi annarsstaðar.
Á nóttunni þurfum við ekki að hjúfra okkur upp að einhverjum kafloðnum náunga.
Það er meira en nóg að eiga þrenn pör af skóm.
Á bílaverkstæðinu dettur engum í hug að ljúgað okkur.
Okkur er alveg sama þótt einhver taki ekki eftir því að við erum nýkomnir úr klippingu.
Það erum við sem eigum fjarstýringuna.

eða Kona
Fríir drykkir.
Fríir kvöldverðir.
Þú getur faðmað vin þinn án þess að hafa áhyggjur af því hvort hann er hommi.
Þú getur faðmað vin þinn án þess að þú hafir áhyggjur af því að þú sért hommi.
Þú veist SANNLEIKANN um hvort stærðin skiptir máli.
Nýr varalitur gefur lífinu lit.
Ef þú sefur hjá einhverjum ertu ekki bundin við það að hringja næsta dag. Þú ert enginn djöfull.
Þú getur höfðað mál gegn forsetanum vegna kynferðislegrar áreitni.
Þú þarft ekki að reka við til að skemmta sjálfum þér.
Ef þú heldur fram hjá manninum þínum er það vegna þess að þú hefur verið tilfinningalega vansvelt
Þú þarft aldrei að hafa áhyggjur af því hvort elskhuginn hafi gert sér upp fullnægingu.
Það líður ekki yfir neinn þegar þú ferð úr skónum.
Ef þú telur að sá sem þú ert að hitta þessa stundina sé hrifinn af þér þarftu ekki að hlaupa til og losa þig við hann.
Ef þú gleymir að raka þig þarf enginn að vita af því.
Þú hefur ekki þörf fyrir að kíkja svo og svo oft niður til að athuga hvort hann sé enn þá þarna.
Þú hefur þann hæfileika að klæða þig upp sjálf skammarlaust.
Þú hefur afsökun fyrir því að vera alger skepna einu sinni á mánuði.
Þú getur talað við fólk af gagnstæðu kyni án þess að fara að ímynda þér það nakið.
Þú rekst örugglega aldrei á neinn sem þú þekkir þegar þú ert að pissa utandyra.
Þú getur endað slagsmál hratt og örugglega með því að byrja að gráta.
Vinir þínir telja þig örugglega ekki skrítna þótt þú spyrjir þá hvort það sé spínat fast á milli tannanna.
Súkkulaðistykki getur á ákveðnum stundum leyst úr öllum þínum vanda.
Þér þykir ekkert óþægilegt þótt þjónn sé samkynhneigður.
Þú getur metið manneskju með því að horfa á skóbúnað hennar.
Þú ert ekki með hár á bakinu.
Þú þekkir glasið þitt alltaf aftur á varalitnum.

hetjan