FBI er með þrjá menn í atvinnuviðtali, þeir tala við þá einn í einu. Fyrsti maðurinn kemur inn og sest niður, FBI maðurinn spyr hann, “elskarðu konuna þína?”, maðurinn svarar að hann elski hana mjög mikið, “elskarðu land þitt?” spyr FBI maðurinn þá, “já það geri ég” svarar hann, “hvort elskarðu meira konuna þína eða land þitt?” spyr FBI gaurinn næst, “land mitt” svarar maðurinn. “Allt í lagi” segir FBI maðurinn, “við komum með konuna þína, farðu nú inn í næsta herbergi með þessa byssu og dreptu hana” Maðurinn fer inn í herbergið, allt er hljótt í um fimm mínútur, hann kemur aftur með bindið sitt laust, allur sveittur og stressaður, hann leggur byssuna á borðið og fer. Annar maðurinn kemur nú inn og sest niður. Viðtalið fer á sama veg. Nú er komið að þriðja gaurnum, viðtalið er eins, gaurinn fer inn í herbergi með byssuna og allt er hljótt í fimm mínútur, þá allt í einu heyrast nokkrir skothvellir og strax á eftir mikill hávaði og öskur. Maðurinn kemur út úr herberginu og FBI gaurinn spyr strax hvað hafi gerst, “það voru bara púðurskot í byssunni þannig að ég varð bara að kyrkja hana”
———————————————– ——————–
Einu sinni var tölvunarfræðingur að fara yfir götu þegar hann heyrði frosk kalla á sig, “ Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu” Strákurinn beygði sig niður og tók froskinn og stakk honum í vasann. Froskurinn sagði aftur við hann: “ Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu þá skal ég vera hjá þér í eina viku.” Strákurinn tók froskinn úr vasanum, brosti framan í hann og stakk honum aftur í vasann. Froskurinn ræskti sig og sagði hátt: “ Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu þá skal ég vera hjá þér í eina viku og gera ALLT sem þú villt.” Aftur tók strákurinn froskinn upp úr vasanum, brosti framan í hann og stakk honum síða í vasann. Þá sagði froskurinn við strákinn: “Hvað er að ? ”Ég sagði þér að ég er forkunarfögur prinsessa, mun vera hjá þér og gera allt sem þú villt. Af hverju villtu ekki kyssa mig ?“ Strákurinn svaraði: ”Sko sjáðu til, ég er tölvunarfræðingur. Ég hef ekki tíma fyrir kærustur en talandi froskur er alveg ótrúlega kúl“
———————————————— ——————-
Tvær ljóskur fóru í fyrsta skipti til útlanda og voru að fara í fyrsta sinn í lest. Þegar þær eru búnar að koma sér vel fyrir í sætunum gengur ávaxtasali á milli sætaraðanna og er að selja framandi ávexti sem þær hafa aldrei séð áður. Þær ákveða að kaupa sér sitthvorn ávöxtinn. Önnur ljóskan ákveður að gæða sér á ávextinum um það leyti sem lestin er að fara inn í göng. Þegar lestin kom út úr göngunum lítur hún á vinkonu sína og segir, ”Ég myndi ekki borða þennan ávöxt ef ég væri þú.“ ”Af hverju ekki?“ ”Ég tók einn bita og varð blind í hálfa mínútu."