Helgin var yndisleg hjá mér og ég vona að þér hafi ekki liðið síður en mér. Konan var fyrir norðan hjá einhverri vinkonu sinni og tók krakkana með. Nægur tími hjá mér við djammið sum sé. Á Laugardagskvöldið fór í veislu hjá Lalla lækni sem hann hélt fyrir okkur gömlu bekkjarfélagana úr menntaskóla. Það var reglulega gaman að hitta alla gömlu vinina aftur


og þá sérstaklega Lalla sjálfan en við vorum alltaf mjög nánir vinir á menntaskólaárunum, en höfum minna verið í sambandi núna hin seinni ár. Mikið að gera hjá honum. En nú gátum við sest niður og gefið okkur góðan


tíma til að spjalla. Ég fór að segja honum frá raunum mínum með Tótu og hann hlustaði gaumgæfilega eins og hann var alltaf vanur að gera. Þegar ég hafði látið móðinn mása svolitla stund sagði hann við mig. “Ásgeir minn þú þarft nú ekki að hafa áhyggjur því að í mínu starfi verð


ég vitni að ýmsum atriðum sem eru margfalt verri en það sem þú lýsir. Fyrir tveimur mánuðum síðan komu til dæmis til mín maður og kona 68 ára gömul og báðu mig að rannsaka þau á meðan þau stunduðu kynlíf. Ég samþykkti það með semingi, skoðaði þau vandlega horfði svo á þau stunda kynlífið, skoðaði þau aftur og sagði þeim að þau væru í fínu lagi, það væri ekkert athugavert við kynlíf þeirra. Svo rukkaði ég þau um 6000 krónur og þau fóru út. Þetta væri svo


sem ekki í frásögur færandi nema að þau fóru að venja komur sínar til mín einu sinni í viku og alltaf með sömu bónina og alltaf neyddist ég til að sinna þeim og rukka 6000 krónur fyrir heimsóknina. Þetta hefur staðið yfir í tvo mánuði og í gær komu þau síðast til mín. Eftir að hafa


skoðað þau ákvað ég að segja þeim að þau hjónin þyrftu ekki að koma til mín framar vegna þessa vandamáls því að þau væru fullkomlega eðlileg hvað þetta varðaði. Þau útskýrðu þá fyrir mér að ég væri aðeins að misskilja þetta. Það var maðurinn sem hafði orðið,; ”Sko við erum ekki hjón. Við erum bara kærustupar sem erum að standa í framhjáhaldi. Við getum ekki gert það heima hjá okkur vegna þess að makar okkar eru alltaf þar. Það kostar 15 þúsund að gera þetta á Holtinu, 10 þúsund á Sögu. Hér getum við gert þetta fyrir 6000 kallinn sem þú rukkar okkur um og ég fæ 5800 til baka frá Tryggingarstofnun.