Maður nokkur deyr og rankar við sér í helvíti. Hann verður að sjálfsögðu ekki mjög ánægður og fer að hugsa þar sem hann stendur í biðröðinni þar sem menn eru skráðir inn. Hann hugsar með sér að hann hafi nú ekki verið svo slæmur að hann eigi þetta skilið. Þegar hann lítur upp sér hann sér til mikillar skelfingar að það er komið að honum að skrá sig inn. Hann gengur rólega að ráðgjafanum við hliðið og getur ekki falið hve vonsvikinn hann er.
“Hvað er að, þú lítur ekki út fyrir að vera mjög hamingjusamur.” segir ráðgjafinn.
“Við hverju býstu? Ég er í helvíti!”, segir náunginn.
“Það er nú ekki svo slæmt, við reynum að hafa gaman hérna. Drekkurðu?” spyr ráðgjafinn.
“Auðvitað, ég drekk mikið”, segir náunginn.
“Nú, þá áttu eftir að elska mánudaga. Á mánudögum drekkum við okkur blindfulla. Þú getur fengið viskí, romm, tequila, bjór og hvað sem hugurinn girnist. Við höfum partý alla nóttina og þú mátt drekka eins mikið og þú vilt. Reykirðu ? ”
“Já reyndar geri ég það”, svarar maðurinn.
“Hva ! Þá áttu eftir að elska þriðjudaga. Við reykjum alla þriðjudaga. Það er svona reykdagur. Við reykjum fína vindla og fínar sígarettur, það er leit að öðru eins gæðatóbaki. Þú getur reykt eins og þú vilt án þess að hafa áhyggjur af krabbameini eða hjartasjúkdómum því þú ert nú jú dauður nú þegar. En notarðu eiturlyf ?”
“Aðeins hef ég prófað það, á mínum yngri árum.”
“Þá er tími til að prófa það sem þú átt eftir að prófa, vegna þess að miðvikudagar eru dópdagar. Engar áhyggjur af því að taka of stóran skammt eða að verða háður því að allir erum við nú dauðir hvort sem er, en finnst þér gaman í fjárhættuspilum ?”
“Ég dýrka það,” segir maðurinn.
“Þá eru fimmtudagar þínir dagar. Við spilum allan daginn, - póker, - tuttugu og einn, - kappreiðar, allt bara. En ertu hommi ?
”Nei reyndar ekki.“
”Ó, þá áttu ekki eftir að fíla föstudaga….."