Það var einu sinni kona sem átti þrjár dætur

Þannig var mál með vexti að hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað mamman þá dótturina sem var að gifta sig í það skiptið að vera fljóta að skrifa heim eftir að hún flyttist að heiman og segja gömlu konunni hvernig kynlífið væri hjá hinum nýgiftu! Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst gömlu konunni bréfið frá dóttur sinni. Á því stóð aðeins “Myllukökur Myllubrauð”. Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók hún eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún var að blaða í Dagblaðinu síðar um kvöldið en þar stóð “ Myllukökur Myllubrauð….ávallt seðjandi” Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur af hafa að elstu dóttur sinni henni væri vel sinnt. En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar til gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni. Þar stóð aðeins “Ingvar og Gylfi”. Kella var nú fljót að leita að Dagblöðunum og fann að lokum auglýsingu frá Ingvari og Gylfa þar sem stóð “ Nýi rúmgaflinn frá okkur……King size og extra langur” Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari dóttur sinni. Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið. Í bréfinu stóð aðeins eitt orð“ Flugleiðir”. Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í Dagblaðinu og á endanum fann hún eina en eftir að hafa lesið auglýsinguna leið yfir kellinguna.Því þar stóð:

"Þrisvar á dag,sjö daga vikunnar á alla áfangastaði!!!