Þessi er helvíti góður að mínu mati :)

Það var maður sem fór upp í leigubíl og sagði leigubílsstjórnanum hvert hann vildi fara, leigubílstjórinn keyrði af stað en eftir stutta stund þurfti maðurinn að spurja hann að einhverju og pikkaði laust í öxlina á honum.. við það brá bílstjórnaum svona hrikalega að hann tók alveg 90° beygju þvert yfir götuna, lenti næstum því fyrir strætó og stoppaði loks nokkrum sentimetrum frá búðarglugga… það var grafarþögn í bílnum í nokkrar sek og þá sagði bílstjórinn “ALDREI gera svona!! Þú hræddir næstum því úr mér líftóruna!!” maðurinn sagði ringlaður “ég bjóst nú ekki við því að smá pikk í öxlina myndi valda svona viðbrögðum..?” þá sagði bílstjórinn “æji fyrirgefðu, ég er svolítið stressaður, þetta er fyrsti dagurinn minn sem leigubílsstjóri eftir að hafa ekið líkbíl í 25 ár!”

hehehehe :)