Hann er reyndar ekkert sérstaklega fyndinn en hvað um það hér kemur hann:

Það var einu sinni kanína sem var alltaf blindfull, á hverju kvöldi varð hún full og um morgunninn alveg geisilega þunn.
En um einn morguninn skeði það að hún vaknaði við hljóð sem var
eins og eitthvað skrölt og hún fer út og athugar málið. En fyrir utan er rebbi vinur hennar á hjóli og hún segir rám eftir fylliríið í gærkvöldi. “Hvað hvernig fórstu að því að kaupa þér svona flott hjól” þá svarar rebbi “það er hægt að leifa sér margt ef maður eiðir ekki öllum peningunum sínum í áfengi” og hann brunaði burt á nýja hjólinu sínu. Nokkrum dögum senna vaknar kanínan við þenna mikla nið í mótorhjóli og þá er það rebbi og hún segir “Hvað hvernig fórstu að því að kaupa þér svona flott mótor hjól” þá svarar rebbi “það er hægt að leifa sér margt ef maður eiðir ekki öllum peningunum sínum í áfengi”. Og hann brunar burt.
Og svo einn mánudag vaknar kanínan eftir þetta rosalega fyllirí hlegarinnar við bíla nið og hún fer að athuga málið sér hún ekki þá rebba á þessum fína bleika Trabant “Hvað hvernig fórstu að því að kaupa þér svona flottan bíl þá svarar rebbi ”það er hægt að leifa sér margt ef maður eiðir ekki öllum peningunum sínum í áfengi“ og hann brunaði burt á nýja bílnum.
Einn dag er rebbi að keyra á nýja bílnum sínum þá birtist þyrla fyir ofan hann og hann getur varla haldið bílnum á götunni fyrir vindinum hann stígur út úr bílnum og sér að þyrlan lendir sér hann þá ekki kanínuna koma út úr þyrlunni blindfulla. Hann segir við kanínuna ”hvernig áttir þú efni á þessu“ og hún segir ”ég fór í endurvinsluna með flöskurnar".