3 félagar deyja í bílslysi og sjá að þeir standa næst við gullna hliðið hjá Lykla-Pétri.

Þeir eru allir spurðir spurningarinnar, “Þegar þú liggur í líkkistunni þinni og vinir og fjölskylda þín eru að syrgja þig, hvað viltu heyra þau segja um þig?”

Fyrsti félaginn svarar, “Ég vil heyra þau segja að ég hafi verið frábær læknir og mikill fjölskyldumaður.”

Annar félaginn svarar, “Ég vil heyra þau segja hversu yndislegur eiginmaður og kennari ég hafi verið og hvernig ég hafi átt þátt í að móta börn framtíðarinnar”

Þriðji félaginn svarar svo,
“Ég vil heyra þau segja…. ‘SJÁIÐ!!! HANN HREYFIST!!!!!’”