Nýi gaurinn í bænum kemur inn á bar og það fyrst sem hann sér er stórt skilti sem hangir fyrir ofan barinn: ÓKEYPIS BJÓR ÆVILANGT FYRIR ÞANN SEM STENST PRÓFIÐ!
Gaurinn spyr barþjóninn hvernig þetta próf sé eiginlega. Barþjónninn svarar, \“jæja í fyrsta lagi verður þú að þamba eina flösku af tequila, alla í einu og þú mátt ekki gretta þig á meðan, í öðru lagi: það er ljón hérna í bakherberginu sem er með tannpínu. Þú verður að ná aumu tönninni úr því með berum höndum. Í þriðja lagi er kona uppi sem hefur aldrey fengið það og þú verður að bæta úr því,,.
Gaurinn: \”heyrðu, gleymdu þessu bara, maður hlyti að vera geðveikur til að reyna að drekka heila flösku af tequila í einu, svo verða skilyrðin bara geðveikislegri eftir að\“.
Nú líður á kvöldið og félaginn er búinn að fá sér nokkuð marga, allt í einu spyr hann, \”kvar er etta tekila?,, Barþjónninn réttir honum flöskuna, hann rífur hana til sín og steypir henni í sig, því næst stendur hann upp og þurrkar framan úr sér tárin og skjögrast inn í bakherbergið, fólkið á barnum heyrir nú svaka urr og læti úr herberginu.
Allt í einu kemur félaginn skjögrandi út úr herberginu, fötin tætt á honum og hann allur rispaður og blóðurgur, og segjir \“ JÆJA kvar er eggi kelling með tannpínuna?\”