Ef þú ert í lyftu með einum öðrum aðila, pikkaðu þá í öxlina á honum og láttu eins og það hafi verið einhver annar.

Ýttu á takkann í lyftunni og gerðu þér upp rafstuð.

Hringdu í spámiðilslínu úr gemsanum þínum og spurðu hvort þeir viti á hvaða hæð þú sért.

Haltu lyftuhurðinni opinni og segðu að þú sért að bíða eftir vini þínum. Leyfðu svo hurðinni að lokast eftir smástund og segðu hátt, “ Nei sæll Guðjón ”

Láttu penna detta á gólfið og bíddu þar til einhver tekur hann upp. Öskraðu þá, “ Þetta er minn penni ”

Komdu með myndavél og taktu myndir af öllum sem koma inn í lyftuna.

Komdu skrifborðinu þínu fyrir í lyftunni og spurðu svo alla sem koma inn hvort þeir eigi pantaðann tíma.

Komdu með Twister teppi og spurðu alla sem koma inn hvort þeir nenni að taka einn leik milli hæða.

Komdu kassa fyrir í horni lyftunnar og spurðu svo
lyftugesti hvort þeir heyri eitthvað tifa.

Stattu óþægilega nálægt einhverjum og þefaðu af honum þannig að hann heyri það.

Öskraðu, “Hópfaðmlag” og reyndu að fá alla til að faðmast.

Opnaðu skjalatöskuna þína og kallaðu inn í hana, “ geturðu ekki örugglega andað þarna inni ”

Snúðu þér alveg upp að veggnum, þannig að nefið snerti vegginn, stattu þar algerlega hreyfingarlaus án þess að fara út.

Gerðu sprengingarhljóð í hvert skipti sem einhver ýtir á hnapp.

Krotaðu lítinn ferhyrning á lyftugólfið og um leið og einhver kemur inn, útskýrðu þá fyrir honum að þetta sé þitt pláss.