****************************************************
- Ég heyrði nýjan brandara um daginn. Vra ég búinn að segja þér hann?
-Ég veit það ekki. Er hann fyndinn?
-Já.
-Þá hefur þú aldrei sagt mér hann!
************************************************ ****
-Veistu hver er refsingin fyrir tvíkvæni?
-Tvær tengdamömmur!
**************************************** ************
-Veistu hvað indíánahöfðinginn Rennandi vatn skírði syni sína tvo?
-Heitt og Kalt!
************************************************ ****
Konan mí skilur mig ekki. En þín?
-Ég veit það ekki. Ég hef aldrei heyrt hana nefna þig á nafn!
************************************************ ****
Þekktur bréfdúfutemjari var spurður hvers vegna bréfdúfurnar hans villtust aldrei.
-Það er einfalt, svaraði hann. Ég læt þær og talandi páfagauka æxlast saman. Ef þær villast geta þær spurt til vegar!
*********************************************** *****
Beinagrind fór til tannlæknis til að láta athuga í sér tennurnar.
-Tennurnar þínar eru í mjög góðu ástandi en það en annað að segja um tannholdið!
****************************************** **********
Ég gæti svo sem sagt ykkur fleiri brandara, en til hvers væri það? Þið mynduð bara hlæja af þeim!

Bæ, bæ.