Veist þú hvernig? Maður einn labbar upp að bóndabæ og bankar á dyrnar. Þegar kona opnaði dyrnar, spurði maðurinn hana hvort hún vissi hvernig fólk stundar kynlíf. Konan, sem var ekki skemmt, skellti hurðinni á manninn. Aftur, bankar maðurinn á hurðina og spyr konuna sömu spurningarinnar. Orðin pirruð á manninum og alls ekki skemmt, öskraði konan á manninn, sagði honum að hypja sig og skellti aftur hurðinni.

Seinna um kvöldið, sagði konan manni sínum frá atvikinu fyrr um daginn. Hann sagðist ætla að vera heima næsta dag til öryggis ef maðurinn kæmi aftur.

Næsta dag, viti menn, kemur ekki sami maður og bankar á dyrnar. Eiginmaðurinn faldi sig með haglabyssuna á meðan konan fór til dyra. Þegar hún var spurð aftur hvort hún vissi hvernig fólk
stundar kynlíf, svaraði hún, “Já auðvitað! Af hverju spyrðu?”

“Gott,” svarar maðurinn, “Stundaðu kynlíf með karlinum þínum næst þegar þú sérð hann og segðu honum að halda sig fjarri konunni minni!”

;)