Komiði sæl.

Ég er í augnablikinu að prófa að taka út yfirlit yfir kork sem birtist þegar póstur er skoðaður. Ástæðan fyrir þessu er að sá hluti korkanna virðist vera að valda gríðarlegu álagi á gagnagrunninum. Þetta kemur þó væntanlega aftur inn á morgun en á meðan getið þið fundið sama yfirlit með því að smella á Lista pósta efst í kubbnum. Nýr póstur takkinn hefur einnig verið færður efst í kubbinn.

kv,
Aquatopia