Ég efast nú lítið um það.
Ég var bara að segja að það eina sem við getum vitað með vissu er að hugur okkar er til.
Ég lærði virkilega að meta þessa pælingu þegar ég heyrði eftirfarandi setningu:
Þegar okkur dreymir vitum við að við erum vakandi og við erum í raunveruleikanum, alveg þangað til að við vöknum, þá föttum við að þetta var allt saman draumur.
Auðvitað er næsta víst að raunveruleikinn eins og hann kemur okkur fyrir sjónir er eins og hann er. En það eina sem við getum virkilega verið viss um er að við, sjálfið, hugurinn, er til.
Ekki hugur þinn eða neins annars, ég get bara verið viss um eigin hug.
En annars þá er heilinn “raunverulegra” fyrirbæri heldur en hugurinn því hann er virkilega hluti af þessum heimi. Hvað er hugurinn svo sem?
Við erum alheimurinn, vaknaður til vitundar um sjálfan sig