Hmm, ókei. Ég er newbie að nota irkið. Ég hef ekkert notað það en er loksins kominn upp með það. Ég veit ekki hvort það sé vandamál sem ég er að tala um en allaveganna eitthvað skrýtið.

Þegar ég slæ inn þar sem stendur “Enter a name of channel to join” og ýti síðan á join á vinsælum íslenskum irkrásum þá er enginn þar. Ég fór á boltatrivia, skrifaði #boltatrivia.is og engin er þar, svo prufaði ég nokkrar aðrar útlenskar rásir eins og #beginner þá kemur þetta upp. En á íslensku rásunum kemur ekkert? Eins og #LOTR.is og #Tolkien.is. Ég skrifa #LOTR.is og #Tolkien.is, ég bara fatta etta ekki. Plz reynið að hjálpa mér. Ég trúi ekki að engin sé þar, ég hef prufað á mörgum mismunandi tímum.