Jæja fólk. Ég veit þetta hefur komið upp áður en hugsið hvað það væri nú gaman að hafa Ógnaraflaáhugamál hérna á huga. Þótt það sé mikill minnihlutahópur hér sem kannast við þetta væri það bara svo gott fyrir okkur að fá það svigrúm til að tjá okkur.
Ég vill bara að þetta verði hugsað almennilega yfir núna.
Mér finnst alltaf hafa vantað á netið allmennileg síða fyrir okkur. Og með því að vera dugleg gæti okkur vel tekist að bygja upp nýtt vel virkt áhugamál.
Við sjúm öll hve vel Tolkien áhugamálið dafnar. Af hverju ekki Ógnaröfl?…Hihi hjómar voldið spúkí en… já, verum bara ákveðin og fáum þetta áhugamál inn.

Og fyrir þá sem ekki náðu að lesa titilinn þá er verið að tala um bókaflokk.

Annars þá bara látið heyra í ykkur hér. Hver vill vera með okkur BETIS í þessu? <br><br>—————————————————————————————————————————————————————————————— “*… Það heyrðist frýs að baki þeim. Þau litu við og sáu Vikarleiða klifjaðansprettil upp hlíðina. Það var hálfundarlegt að sjá Kírínska skeppnu í Hersíu en Röskvi bjóst við að það yrði æ algengara eftir því sem samskipti þjóðanna ykust. Og það var svosem ekkert undarlegri sjón en Vikar, hverblettur á líkama hans þakinn húðflúri og efst trjóndi makki af marglitu hári. Hann var yfirleitt ber að ofan en að þessu sinni í heklu til varnar gegn haustvindinum. Hann lyfti glófaklæddri hendi í kveðjuskyni og Deplir gelti. Hundurinn var vitanlega með honum. Þar sem annar fór var hinn líka.
Röskvi brosti til Líönnu. ”Og ég get ekki sagt að ég sé sáttur við ferðafélagann sem þú velur þér.“
”Hún verður öruggari með mér en nokkrum öðrum,“ sagði Vikar og sló hann í öxlina. ”Auk þess hefur mér sýnst hún geti allveg séð um sig sjálf.“ Hann snéri sér að Líönnu. ”Ertu tilbúin að fara?“ *”
–B*sky 3. hluti 3. bók bls. 164-165–
Undiskriftingur