Datt í hug að koma með þá hugmynd að þegar að þyrfti að senda póst einhverra hluta vegna (t.d. ábendingar og kvartanir á áhugamáli), að ef stjórnendurnir eru margir að hægt væri að senda sameiginlegan póst á það tiltekna áhugamál, og sá póstur myndi þá poppa upp í pósthólfi með svipuðu sniði og greinarnar gera (eða gerðu, var stjórnandi fyrir 1-2 árum). Þannig gætu allir stjórnendur lesið póstinn, og/eða fyrsti stjórnandinn sem læsi póstinn gæti afgreitt þær beiðnir sem kæmu þar fram.
Svipað afbrigði mætti þróa fyrir almenna Hugara og almenna stjórnendur til yfirstjórnenda.

kv. STH86