Hvernig væri að endurvekja þann valmöguleika hjá notendum að fá netföng sem væru semsagt *notendanafn*@hugi.is?

Ég man þegar ég átti hugi.is netfang, ég hafði notað það stundum, en það var ekki fyrr en að MSN öldin hófst sem að ég virkilega notaði slíkt netfang. Núna væri það kostulegt að hafa sora@hugi.is netfangið

Ég hef heyrt að ástæðan fyrir því að það hafi verið fjarlægt væri sú að það var lítið notað, því get ég trúað en ef að þetta kæmi upp aftur er ég handviss um að einhverjir myndu taka upp þessi netföng fyrir MSNið sitt að minsta kosti :)