Ég hef mikinn áhuga á að það veði gerðar fleiri áhugamála síður fyrir bíla, þótt svo að ég sé mest í jeppunum þá eru margir sem hafa engan áhuga á jeppum en mikinn áhuga á öðrum bílum, hjólum og vélum og öðrum fylgihlutum farartækja. Svo að ég mæli eindregið með því að það verði sett up eitthvað meira um bíla.
Þá væri líka hægt að breita valmyndinni efst á forsíðunni og setja einn kassa sem héti bílar og önnur farartæki og svo undir því gæti verið t.d.: jeppar, sportbílar, trukkar, mótorhjól, fjórhjól, sleðar og svo bara venjulegir bílar.


Með von um góðar undirtektir !! :)

gauijul