Sælinú. Það er eitt sem pirrar mig dálítið við að lesa greinar og korka á huga, en það er að greinarnar koma mjög illa út á stórum skjám, allavega breiðtjaldsskjám.

Ég er t.d. með 22" skjá og textalínan nær þvert yfir allan skjáinn svo það er mjög óþægilegt að skoða síðuna, það væri ekki óvitlaust að hafa þetta einhvern veginn þrengra svo maður sé fljótari að lesa(maður les hraðar ef línan er hæfilega löng).