Ég var að spá hvort hægt að breyta huga dálítið svo að hægt væri að gefa álit á fleira en aðeins korkum, greinum og myndum? Þá er ég að tala um að hægt yrði að gefa álit á myndböndum, atburðum, jafnvel könnunum og kannski fleira ef ég er að gleima einhverju. Það væri nefnilega gott að geta sagt sína skoðun á flestum af þessum hlutum án þess að þurfa að vera að gera einhverja sér korka til að segja af hverju maður gaf myndbandi þetta mikið af stjörnum eða hvað manni fannst um myndbandið, af hverju maður valdi þennan valmöguleika í skoðanakönnunum og af hverju maður ætlar eða ætlar ekki að gera einhvað í atburðum. Endilega segið hvað ykkur myndi finnast um þetta add-on sem ég er að stinga upp á. (Vona að þetta hafi ekki komið áður).

Bætt við 7. ágúst 2007 - 17:40
Tek eftir því að það er þegar búið að stinga upp á athugasemdum á háhraða…sorry að ég hafi endurtekið þá hugmynd. :/
ég er ekki svín! ÉG ER HERRA SVÍN! VAAAAH!!! >.<"