Hvernig myndi fólk taka í það að hafa áhugamálið /street art eða /götulist.

Miða við götur borgarinnar þá er e-r áhugi fyrir þessu.

Umræður a áhugamálinu yrðu ábyggilega mjög fjölbreyttar þar sem götulist getur verið allt frá gjörningi, límmiðum og plakötum uppí grafiti eða stensla (bæði á föt og veggi).

Kanski myndi þetta hjálpa til við að gera götulist að e-r meiru en veggjakroti og Random skemmdarverkum.. hver veit?

Ég er auðvitað ekki að segja að götulist á Íslandi sé eintómt kjaftæði, bara að það má alltaf gera betur. Og þetta gæti orðið góður ummræðustaður fyrir listamenn til að sýna verk sín og svona :)

Góð lesning um Götulist:
http://en.wikipedia.org/wiki/Street_art