Mig langar að vita af hverju er ekki hægt að nota sértákn eða séríslenska stafi þegar maður er að skrá nýtt notendanafn? Þegar ég var að byrja hér í fyrsta skiptið á huga þá gat ég ekki skráð mitt nafn hér útaf þessu vandamáli af því að mitt nafn er með séríslenska stafi einsog ð og ó og þess vegna varð ég að kalla mig allt annað. Er ekki tími til komið að lagfæra þetta vandamál? Ég meina þetta er alíslensk síða er það ekki? En það hlýtur að vera hægt að gera þetta að möguleika. En ég get skráð mig með séríslensku stöfum og sértáknum annarsstaðar á íslenskum síðum. Af hverju ekki hér?