Mér finnst kannanir á forsíðu vera alltof lengi þar. Sú núverandi er búin að vera í örugglega mánuð á meðan vika er alveg nóg að mér finnst. Auk þess ætlaði ég að spyrja að því hver er stjórnandi forsíðurnar ef það er þá einhver. Ég sendi nefnilega könnun þangað fyrir þó nokkuð mörgum vikum en fékk hana hvorki samþykkta né hafnaða sem mér finnst ansi skítt. Þessa könnun er ég búinn að senda inn tvisvar þannig að þetta er líklega ekki minn feill.