Sendi vefstjóra skilaboð en það bar engan árangur:



Hér kem ég með hugmynd að Vetraríþrótta áhugamáli hér á Huga.is.

Ég veit að margir hafa beðið lengi eftir þessu, svo mér datt í hug að senda þér bara skilaboð.

Hugmyndin er að leggja niður Bretta áhugamálið og stofna í staðinn Vetraríþrótta áhugamál, snjóbretta og skíða fólk (og allt hittfólkið að sjálfsögðu líka) myndi þá geta notið sín þar(sem stendur hefur skíðafólk engann stað til að vera á).

Hjólabretta fólk myndi þá stunda Jaðarsport í staðinn fyrir bretta áhugamálið.

Með þessari aðferð hefur skíðafólk öðlast stað með snjóbretta fólkinu, og hjólabrettafólkið myndi færast á réttan stað (Jaðarsport)en samt bætist ekki við áhugamál.

Ég vil biðja þig að íhuga þetta vel og vandlega og taka tillit til þess að fjöldi fólks hefur beðið lengi eftir þessu og að skíðafólk hefur engan samastað.

Með fyrirfram þökkum.
Kv. Saphira