Finnst sú breyting sem var gerð þegar korkarnir voru teknir af forsíðunni ekki hafa verið af hinu góða. Ég áætla að margir séu á sama máli og langar að leggja það til að aftur verði opnað fyrir korka á forsíðunni.
Ef það er eitthvað sem ég vill segja við alla hugara, þá er í raun enginn staður til þess, ef ég hef eitthvað að segja sem tengist í raun engu áhugmáli þannig séð, hef einhver skilaboð sem höfðað gætu til allra, ekki bara einhverra sem sækja ákveðið áhugamál, þá þarf að vera staður fyrir þau skilaboð. Ég hafði rosalega gaman af því að renna yfir þessa korka sem voru þarna, flest bara heilalaust bull, en stundum er maður í stuði fyrir heilalaust bull…