Góðan daginn,

Mig langaði að kynna þessa heimasíðu fyrir vini mínum en þegar hann reyndi að skrá sig þá reyndist kennitalan hans vera í notkun.

Nú veit ég ekki hvernig ég á að snúa mér en hann hefur að sjálfsögðu rétt á því að nota sína kennitölu og getur sannað hver hann er með skilríkjum!

Endilega hafa samband við mig ef að einhver lausn á þessu máli er möguleg, takk.